logo-for-printing

21. mars 2025

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2025

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 02/2025 dags 20. febrúar sl. þar sem að meginvextir bankans hafa lækkað um 0,25 prósentur síðan þá.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi og verða 15,50% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2025.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2025:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,45% - (lækka úr 8,60%)
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,00% - (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,63% - (lækka úr 5,73%)
Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2025
Til baka