Endurskoðun á gjaldmiðlavogum
Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2023. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2024. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2025 til næstu endurskoðunar að ári.
Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á þriggja ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:
Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
• Ástralskur dalur bætist við
Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):
• Kúveiskur denari bætist við
Í vöruviðskiptavogum eykst vægi ástralíudals og bandaríkjadals töluvert milli ára, en á móti minnkar vægi evrunnar. Í þjónustuviðskiptum eykst vægi ástralíudals og sterlingspunds nokkuð en á móti dregur úr vægi norsku krónunnar. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar, en þar eykst vægi bandaríkjadals mest en einnig eykst vægi ástralíudals nokkuð. Vægi evrunnar minnkar mest milli ára en einnig minnkar vægi norsku krónunnar nokkuð.
Sjá nánar hér:
Nánari upplýsingar eru veittar á sviði hagfræði og peningastefnu í Seðlabankanum í síma 569-9600.