Tilkynningar vegna COVID-19
Hér eru á einum stað þær upplýsingar um aðgerðir, fréttir og tilkynningar sem Seðlabankinn birti sérstaklega í tengslum við viðbrögð við útbreiðslu COVID-19. Fleiri aðgerðir bankans sem sagt er frá á vef hans hafa þó getað tekið mið af ástandinu sem COVID-19 olli. Bankinn greindi fyrst frá breyttri starfsemi 10. mars 2020 og daginn eftir var birt frétt um fyrstu aðgerðina. Hætt var að uppfæra þessa síðu í maí 2021.
Aðgerðir Seðlabankans vegna COVID-19
Markmið Seðlabanka Íslands er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Heimsfaraldur COVID-19 og þær sóttvarnaraðgerðir sem ráðist var í til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins höfðu gríðarlegar efnahagslegar afleiðingar í för með sér. Til að bregðast við ástandinu lækkaði Seðlabankinn meðal annars vexti, jók aðgengi innlendra fjármálafyrirtækja að fjármagni, beitti gjaldeyrisforða gegn gengissveiflum og hóf kaup á ríkisskuldabréfum á eftirmarkaði.
Sýna allt
Af hverju voru vextir lækkaðir?
Af hverju var aðgengi fjármálafyrirtækja að fjármagni aukið?
Af hverju var gjaldeyrisforðanum beitt gegn gengissveiflum?
Af hverju keypti Seðlabankinn ríkisskuldabréf?
Samantektir í ritunum Peningamál og Fjármálastöðugleiki um áhrif COVID-19 faraldursins og aðgerðir vegna hans:
Peningamál - Rammagrein 1 Efnahagsleg áhrif COVID-19-heimsfaraldursins
Peningamál - Rammagrein 2 Efnahagsaðgerðir vegna COVID-19-heimsfaraldursins
Fjármálastöðugleiki - Rammagrein 1 Aðgerðir vegna COVID-19-farsóttarinnar
Fjármálastöðugleiki - Rammagrein 3 Fjármagnsflæði á tímum COVID 19-farsóttar: Verulegur fjármagnsflótti frá nýmarkaðsríkjum en stöðugleiki á Íslandi
Fjármálastöðugleiki - Rammagrein 5 Greiðslumiðlun og COVID-19-farsóttin